Fundargerð 16.sept 2024

Mánudaginn 16. september var haldinn félagsfundur. Hér er hlekkur á fundargerðina.

Fundarboðið var eftirfarandi:
Kæru félagar,

Með þessu bréfi boðum við til fundar í Félagi lóðarhafa að Þórisstöðum. Verður fundurinn haldinn í Jónsbúð, Akursbraut 13 Akranesi, mánudaginn 16.september 2024 kl 17:00.

Rétt til fundarsetu hafa lóðarhafar við Kúhalla og Hjallholt og makar þeirra, eða þeir sem hafa undirritað og vottað umboð.
Nú er STJÁ á lokametrunum með að selja eigendum Þórisstaða jörðina með sumarhúsalóðunum.  Með kaupsamningnum mun fylgja viðauki um að lóðarhöfum yrði boðið að kaupa sínar lóðir (sjá meðfylgjandi skjal) og viljum við fara yfir málið á fundinum og næstu skref.  

Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara.
2. Farið yfir viðauka við kaupsamning Þórisstaða 2.  
3. Farið yfir fyrirkomulag við kaup á lóðum og næstu skref.
4. Önnur mál
Bestu kveðjur,
Stjórn félags lóðarhafa að Þórisstöðum
Jóhann Vignir Gunnarsson
Þór Arnar Gunnarsson
Sigurjón Skúlason

Proudly powered by WordPress | Theme: Wanderz Blog by Crimson Themes.