Eftirfarandi er erindi sem Axel og Sunna vildu koma á framfæri:
Kæru lóðarhafar að Þórisstöðum II,
Nú hafa kaup okkar á Þórisstöðum II af STJÁ gengið í gegn og beðið er eftir að þinglýsing afsals fari fram hjá sýslumanni.
Eftir þinglýsingu getum við afsalað lóðum til þeirra sem hafa hug á að breyta sínum lóðum í eignarlóðir.
Við viljum biðja alla um að upplýsa um áform sín með skráningu í skjal sem er í þessum hlekk.
Þeim lóðarhöfum sem ekki skrá áform sín í skjalið innan 7 daga, verður sent ábyrgðarbréf þar sem þeir eru upplýstir um rétt sinn á að kaupa sínar lóðir.
Í þessum hlekk er hægt að skoða og/eða hlaða niður þeim samning sem gerður var milli stjórnar sumarhúsafélagsins og okkar er varðar verð lóða og skilmála er varða t.d. rekstur og innviði. Samningurinn og fleiri upplýsingar eru einnig á heimasíðu sumarhúsafélagsins www.thorisstadir.is
Lóðarleiga þeirra sem kaupa sínar lóðir verður endurgreidd frá uppgjörsdegi við STJÁ, hvort sem þið gangið frá kaupunum í október, nóvember eða desember.
Kær kveðja, Axel og Sunna Rós,
897-5188